{"product_id":"margot","title":"Margot","description":"\u003cp\u003eBreiði hausinn þrýstir að G-blettinum og nuddar leggöngin innan frá, á meðan hinn mótorinn lætur titringinn ná til snípsins. Mótorarnir vinna saman og láta djúpan titring færast frá hálsinum upp í hausinn í bylgjum sem fylgja því hvernig unaðurinn byggist upp fyrir fullnægingu. Fyrir fólk með typpi má renna skaftinu inn í endaþarminn og láta sveigða hausinn finna P-blettinn með markvissum titringi. Mjúkt sílikonið gefur eftir með líkamanum og hausinn hitnar úr 38 í allt að 42 gráður, svo hver hreyfing verður hlýrri og meira æsandi.\u003c\/p\u003e\n\n\u003cp\u003eFimm titringsmynstur, fimm styrkleikar og sérstök snjallstilling gefa þér svigrúm til að byrja rólega eða færa titringinn beint í hæsta styrk þegar þú vilt sleppa biðinni. Mótorarnir eru nær hljóðlausir, svo þú mátt alveg vera sú eða sá sem lætur heyra í sér. Í SVAKOM appinu má finna fleiri stillingar, teikna eigin mynstur og láta titringinn fylgja tónlist eða hljóðum. Þú getur stjórnað sjálf eða falið makanum stjórnina úr sama herbergi eða yfir langa vegalengd, auk þess sem appið býður upp á textaspjall og myndsímtöl. Minnisaðgerð geymir síðustu stillingu, ferðalæsing kemur í veg fyrir óvænta gangsetningu og IPX7 vatnsheldni leyfir leik í sturtu eða baði. USB-C hleðslusnúra fylgir og full hleðsla tekur um 2,5 klukkustundir.\u003c\/p\u003e","brand":"Svakom","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":46443870748729,"sku":"54078260000","price":14990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0755\/8470\/0473\/files\/359_0f8edf5f-580c-48b4-a168-1d579b93790e.png?v=1788433602","url":"https:\/\/lovely.is\/products\/margot","provider":"Lovely ","version":"1.0","type":"link"}