Anal Douche

Anal douche er skolunartæki fyrir þau sem vilja undirbúa sig fyrir rassaleik. Skolun er val en ekki nauðsyn og mikilvægt er að fara varlega. Notaðu lítinn þrýsting og gefðu líkamanum tíma. Hér finnur þú mismunandi gerðir sem auðvelda þér að velja búnað sem hentar þinni rútínu.


Hvað er anal douche?

Anal douche er notað til að skola neðsta hluta endaþarmsins fyrir rassaleik. Búnaðurinn getur verið einföld skolkúla eða stútur sem tengist við sturtu. Skolun er þó ekki nauðsynleg fyrir öruggan eða ánægjulegan rassaleik og fyrir mörg dugar að fara á salernið og þvo svæðið að utan.

Svona ferðu varlega

Fylltu búnaðinn með hreinu vatni og settu sleipiefni á stútinn áður en honum er rennt varlega inn. Notaðu lítið magn af vatni í einu og hafðu þrýstinginn lágan. Losaðu vatnið síðan á salerninu og endurtaktu aðeins eftir þörfum. Ekki þvinga stútinn inn og stoppaðu strax ef þú finnur fyrir sársauka eða óþægindum.

Forðastu ertingu og of mikla skolun

Of mikil skolun getur ert viðkvæma slímhúð endaþarmsins. Notaðu ekki sápu, ilmefni eða sterk hreinsiefni innvortis og forðastu að skola með miklum þrýstingi. Hreinsaðu anal douche vandlega eftir notkun og láttu búnaðinn þorna alveg áður en honum er pakkað saman.