Hvað er BDSM?
BDSM er samheiti yfir kynlífsleik sem getur meðal annars falið í sér bindingar, stjórn, undirgefni, reglur og sársauka. Leikurinn þarf þó ekki að vera harður eða flókinn. Fyrir suma byrjar BDSM með handjárnum og bundnum augum en aðrir vilja flengingar, klemmur eða að láta makann stjórna hverri hreyfingu. Það sem skiptir máli er að finna það sem vekur löngun hjá ykkur báðum.
Finnið það sem kveikir í ykkur
Handjárn og bindingar halda líkamanum þar sem þið viljið hafa hann og gera hverja snertingu ákafari. Flengingar geta gefið allt frá léttri snertingu yfir í skarpari sting en klemmur veita þrýsting á geirvörtur eða sníp. Ball gag bætir enn meiri stjórn við leikinn og takmarkar hvað makinn getur sagt. Byrjið á því sem heillar ykkur mest og bætið síðan við nýjum tækjum og tilfinningum þegar þið viljið ganga lengra.
Samþykki og öruggur BDSM leikur
BDSM á alltaf að byggjast á samþykki, trausti og hreinskilnum samskiptum. Ræðið fyrirfram hvað ykkur langar að prófa, hvað má alls ekki gera og hvenær á að stoppa. Veljið öryggisorð sem stöðvar leikinn strax. Ef ball gag er notað þurfið þið einnig að ákveða skýrt handamerki sem hægt er að nota í stað orða. Fylgist vel með líðan hvors annars og munið að stjórn er aðeins spennandi þegar báðir aðilar vilja hana.