Skil & Endurgreiðsla
Skil & endurgreiðslur
Við viljum að þú sért ánægð/ur með kaupin þín. Þú hefur 14 daga til að falla frá kaupum samkvæmt lögum nr. 16/2016, að því tilskildu að varan sé ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Vegna hreinlætis og lýðheilsusjónarmiða gildir skilafrestur ekki um vörur sem hafa verið opnaðar eða seldar í innsigluðum umbúðum sem hafa verið rofnar, svo sem kynlífsleikföng, sleipiefni og aðrar vörur í beinni snertingu við líkama.
Ef vara er gölluð eða röng, endurgreiðum við eða sendum nýtt eintak eins fljótt og auðið er. Hafðu samband við okkur á info@lovely.is og við finnum lausn.

