Sleipiefni sem endast lengur
Silíkon sleipiefni þorna ekki eins fljótt og vatnsleysanleg sleipiefni og því getur þú haldið áfram að njóta án þess að stoppa stöðugt til að bæta við. Þau henta vel í sjálfsfróun og kynlífi með maka og eru sérstaklega góð fyrir endaþarmsleik þar sem endaþarmurinn myndar ekki eigin bleytu. Notaðu nóg, byrjaðu rólega og bættu við eftir því sem löngunin eykst.
Þunnt eða þykkt sleipiefni
Þynnra silíkon sleipiefni hentar vel þegar þú vilt mjúkar strokur og meiri bleytu í sjálfsfróun eða kynlífi með maka. Þykkara sleipiefni helst betur á sínum stað og hentar sérstaklega vel með butt plug, anal beads, strap on og við endaþarmsmök. Veldu það sem passar við leikinn og hversu blautan og sleipan þú vilt hafa hann.
Silíkon sleipiefni og kynlífstæki
Ekki er mælt með því að nota silíkon sleipiefni með kynlífstækjum úr silíkoni þar sem sleipiefnið getur með tímanum haft áhrif á yfirborð þeirra. Vatnsleysanlegt sleipiefni er betri kostur með slíkum tækjum. Silíkon sleipiefni henta yfirleitt vel með tækjum úr stáli, gleri og hörðu plasti, en lestu alltaf leiðbeiningarnar áður en leikurinn byrjar.