Nánar um vöruna
Original frá Pjur er eitt vinsælasta sleipiefni heims og ástæðan er einföld, það er mjúkt, öruggt og endist ótrúlega lengi. Formúlan byggir á hreinum silíkonefnum sem leggjast á húðina án þess að draga í sig raka, þannig að hún helst silkimjúk og sleip lengi eftir að hún er borin á. Fullkomið hvort sem er fyrir kynlíf eða nudd.
Þú þarft aðeins lítið magn og því dugar það lengi. Það er lyktarlaust, bragðlaust og án rotvarnarefna eða aukaefna. Hentar einnig við þurrki í leggöngum og má nota með smokkum. Gelið er húðprófað og öruggt fyrir næma húð.

