Nánar um vöruna
Titrarinn er mjór og rennur þægilega inn. Sveigjanlegur, rifflaður hausinn leggst þétt að G-blettinum og nuddar hann með hverjum titringi. Kveiktu á hitanum og láttu hausinn ná allt að 38°C fyrir hlýja og mýkri tilfinningu eða notaðu titringinn án hita þegar það kveikir meira í þér. Hausinn hentar líka vel til að strjúka snípnum og öðrum næmum stöðum, hvort sem þú nýtur hans ein eða með maka.
Veldu fimm titringsmynstur í fimm styrkleikum beint á tækinu eða tengdu það við SVAKOM appið. Þar geturðu búið til eigin mynstur, látið titringinn fylgja tónlist eða hljóðum og fært makanum stjórnina bæði nær og fjær. Minnið kveikir aftur á síðustu stillingu, ferðalásinn kemur í veg fyrir óvænta gangsetningu og IPX7 vatnsheldni gerir Cici 2 tilbúinn í sturtu og bað. Titrarinn hleðst með meðfylgjandi USB-C snúru og geymslupoki fylgir.

