Nánar um vöruna
Opin hönnunin gerir það auðvelt að staðsetja múffuna nákvæmlega þar sem tilfinningin er best. Mjúku sílikonhliðarnar leggjast þétt að typpinu á meðan öflugur titringur og djúp, taktföst örvun leika um kónginn og næmasta blettinn undir honum. Tvö stillanleg bönd fylgja svo hægt sé að festa múffuna þægilega á typpið og njóta hennar án handa. Einnig má halda á henni og renna henni taktfast upp og niður eftir typpinu.
Lovense Remote appið gefur þér eða maka fulla stjórn á styrk og takti, hvort sem þið eruð saman eða langt hvort frá öðru. Í appinu má búa til og vista eigin stillingar ásamt því að samstilla örvunina við tónlist, myndbönd, sýndarveruleika og leiki. Gush 2 hentar einstaklega vel fyrir edging og fullnægingarstjórnun þegar þú vilt draga unaðinn á langinn, halda þér rétt á mörkunum og gera fullnæginguna enn sterkari. Múffan er vatnsheld og því tilvalin í sturtu eða bað.

