Nánar um vöruna
Mjúkir sílikonhringirnir fara utan um typpi og pung og hjálpa þér að halda stinningunni lengur á meðan titringurinn eykur örvunina. Boginn titrarinn liggur meðfram typpinu og rennur með því inn í leggöngin þegar þið stundið kynlíf. Þannig fær makinn titring og nudd á G-blettinn samhliða hreyfingum typpisins, á meðan þú finnur titringinn við typpið og punginn. Upphleyptar rákir við endann nudda leggöngin þegar þið hreyfið ykkur, svo hægar, djúpar hreyfingar geta verið jafn freistandi og hraðari taktur.
Tíu stillingar skiptast í fjóra hraða og sex titringsmynstur, svo þið getið valið jafnan titring eða látið mynstrin breyta taktinum. Stillingunum er stjórnað með hnappi á tækinu eða þráðlausri fjarstýringu sem makinn getur tekið við þegar þig langar að láta koma þér á óvart. Notið hringinn með vatnsleysanlegu sleipiefni svo hann renni þægilega á og titrarinn mjúklega inn í leggöngin. Hann er endurhlaðanlegur og býður upp á allt að 50 mínútna notkun eftir 50 mínútna hleðslu.

