Nánar um vöruna
Silkimjúkt og sveigjanlegt sílikonið leggst þægilega að líkamanum og gerir Lily að frábærum fyrsta titrara. Innri hlutinn örvar G-blettinn á meðan ytri hlutinn titrar við snípinn svo þú færð tvöfaldan unað úr einu leikfangi. Tveir mótorar og tíu titringsstillingar gefa þér frelsi til að byrja á mjúkum titringi, byggja spennuna rólega upp eða fara beint í kraftinn sem kveikir í þér.
Tveir takkar gera stjórnina einfalda: neðri takkinn kveikir og slekkur með einni stuttri snertingu en sá efri færir þig á milli titringsstillinganna. Berðu vatnsleysanlegt sleipiefni á innri hlutann, renndu honum rólega inn og stilltu ytri hlutann þannig að hann leggist að snípnum. Lily gengur fyrir tveimur AAA-rafhlöðum og nýjar rafhlöður tryggja að þú fáir allan kraftinn þegar löngunin tekur við.

