Nánar um vöruna
Breiður titringshausinn leggst þægilega yfir snípinn og dreifir kraftinum yfir skapabarmana svo örvunin verður djúp, jöfn og ákaflega unaðsleg. Veldu á milli fimm styrkleika og tíu titringsmynstra til að finna taktinn sem líkaminn þráir. Nuddvöndurinn hentar einnig vel á kónginn, spöngina, geirvörtur og aðra næma bletti eða sem lostafullur nuddari yfir allan líkamann.
Majesty 2 má nota í sjálfsfróun eða rétta makanum þegar þig langar að sleppa stjórninni og njóta þess sem kemur næst. Aðskildir hnappar fyrir styrk og titringsmynstur gera það auðvelt að breyta tilfinningunni án þess að rjúfa stemninguna. Nuddvöndurinn er hljóðlátur, IPX7 vatnsheldur og gefur allt að tveggja klukkustunda unað eftir fulla hleðslu. Hann vakti einnig mikla athygli þegar hann birtist í tónlistarmyndbandinu Up með Cardi B.

