Mini Lip Gloss - 3.5 ml
Mini Lip Gloss - 3.5 ml

Mini Lip Gloss - 3.5 ml

Mini Lip Gloss - 3.5 ml

Gefðu vörunum þínum ómótstæðilega fyllingu og glans með þessum lúxus glossi sem er hannaður til að kveikja í öllum skynfærum. Glossinn veitir ekki bara fallegan og djúsí gljáa án þess að klístra, heldur býr hann yfir kitlandi áhrifum sem gera forleikinn mun spennandi. Hann er fullkominn til að hafa í töskunni og nota hvenær sem þú vilt draga athyglina að vörunum, eða nota hann sem leynivopn fyrir lostafullan og örvandi forleik þar sem hver snerting verður ákafari.

Venjulegt verð 2.290 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 2.290 kr
Magn:

Nánar um vöruna

High on Love Lip Gloss er mun meira en bara venjulegur varagloss, þetta er lúxusvara sem magnar upp nándina og eftirvæntinguna. Formúlan veitir vörunum sýnilega fyllingu  og dásamlegan gljáa, á sama tíma og hún skilur eftir sig kitlandi og örvandi tilfinningu. Galdurinn felst í því að nota hann fyrir forleik eða munnmök, en glossinn deilir örvuninni með makanum og gerir hverja snertingu mun næmari og heitari.

Gæði innihaldsefnanna eru í fyrirrúmi eins og alltaf hjá High on Love, en glossinn inniheldur hágæða hampfræolíu sem mýkir og nærir húðina. Hann er algjörlega öruggur til notkunar á næmustu svæði líkamans, svo þú getur notað hann djarflega til að auka unaðinn í forleiknum. Hvort sem þú notar hann einan og sér fyrir náttúrulegan glans eða yfir uppáhalds varalitinn þinn, þá færir þessi gloss þér spennandi og kitlandi upplifun sem endist.

Tæknilegar Upplýsingar

Tegund: Örvandi varagloss með fyllingaráhrifum
Magn: 3,5 ml
Eiginleikar: Veitir fyllingu, gljáa og kitlandi tilfinningu
Lykilinnihald: Hampfræolía, Glycerin og Menthyl Lactate
Notkun: Á varir fyrir glans eða fyrir örvandi forleik og munnmök
Öryggi: Prófað og öruggt fyrir næmustu svæði líkamans
Áferð: Silkimjúkur glans sem klístrar ekki