Nánar um vöruna
Opið er mótað eins og munnur með mjúkum vörum sem gefa leiknum tælandi yfirbragð og skapa tilfinningu sem minnir á munnmök. Mjúk og teygjanleg múffan lokast þétt utan um typpið á meðan bylgjur og upphleypt mynstur að innan örva það við hverja hreyfingu. Dökkbrúni húðtónninn gefur múffunni fallegt útlit og látlaust hylkið vekur litla athygli á náttborðinu eða í ferðatöskunni.
Settu vel af vatnsleysanlegu sleipiefni inn í múffuna og á typpið áður en þú rennir því rólega inn á milli varanna. Leiktu þér með hraða, dýpt og grip og bættu við meira sleipiefni eftir þörfum. Eftir notkun tekurðu múffuna úr hylkinu og þværð hana vandlega með volgu vatni og hreinsi fyrir kynlífsleikföng eða mildri bakteríudrepandi sápu. Láttu hana þorna alveg áður en hún er sett aftur í hylkið.

