Nánar um vöruna
Pleasure Air tæknin örvar snípinn með taktföstum sogpúlsum sem byggja upp unað án þess að snerta snípinn beint. Fjórtán styrkleikar leyfa þér að byrja á mjúku og hægu sogi, draga leikinn á langinn og auka svo kraftinn eftir því sem æsingurinn magnast. Dveldu við þann styrk sem hittir í mark eða haltu áfram þar til píkan fær kröftuga örvun og fullnægingin tekur yfir.
Krúttlega ferskjuformið er sótt í vinsæla ferskjutáknið og við fyrstu sýn lítur tækið frekar út eins og skraut en kynlífstæki. Á stílhreinum standinum getur það beðið tilbúið á náttborðinu eða farið lítið fyrir því í skúffunni. Einföld stjórnun hentar vel þeim sem eru að prófa sogtæki í fyrsta sinn, en útlitið gerir ferskjuna líka að skemmtilegri viðbót í safnið. IPX7 vatnsheldni býður upp á leik í sturtu, baði eða sundlaug og USB hleðsla gefur allt að 60 mínútna notkun á hæsta styrk.

