Nánar um vöruna
Mjúkur sílikontitrarinn er mótaður til að örva leggöngin og G-blettinn á sama tíma og ytri hlutinn leggst að snípnum. Þannig færðu tvöfalda örvun úr einu leikfangi án þess að þurfa að velja á milli unaðar að innan eða utan. Sveigjanlegt formið og þægileg stærðin gera titrarann góðan fyrir fyrstu kynni af rabbit titrurum en tíu stillingar bjóða jafnframt upp á næga fjölbreytni fyrir reyndari notendur.
Tveir takkar sjá um alla stýringu. Stutt snerting á neðri takkanum kveikir og slekkur en efri takkinn færir þig á milli titringsstillinganna. Berðu vatnsleysanlegt sleipiefni á skaftið, renndu því rólega inn og stilltu snípörvarann þannig að hann leggist þar sem titringurinn finnst best. Titrarinn er skvettuvarinn en má ekki fara á kaf í vatn.

