Nánar um vöruna
Sætt karamellubragð með örlitlu salti gerir líkamann að ljúffengum eftirrétti. Þetta vatnsleysanlega sleipiefni er tilvalið í munnmök og forleik þegar ykkur langar að njóta þess að smakka, sleikja og kanna hvort annað. Bragðið sameinar mjúka, sæta karamellu og léttan saltkeim sem gefur sætunni skemmtilegt mótvægi. Bragðefnin eru öll náttúruleg og silkimjúk áferðin gerir bæði tunguna og hendurnar að enn betri leikfélögum.
Mild formúlan dreifist auðveldlega og heldur hreyfingunum mjúkum og þægilegum lengi. Ef sleipiefnið fer að þorna má bæta við örlitlu vatni til að gera áferðina silkimjúka á ný, án þess að þurfa sífellt að bæta við sleipiefni. Það hentar með latexsmokkum og kynlífstækjum, skilur ekki eftir bletti og auðvelt er að skola það af eftir leikinn. Formúlan er líka vegan, svo hér fara sætt bragð og praktískir eiginleikar vel saman.

