Nánar um vöruna
Vatnsmelóna, jarðarber eða mangó og ástaraldin. Hvað langar ykkur að smakka fyrst? Þessi þrjú vatnsleysanlegu sleipiefni bæta sætu ávaxtabragði við munnmök og gera forleikinn enn ljúffengari. Mjúk áferðin gerir strokur og hreyfingar þægilegri án þess að verða klístruð, svo þið getið sleikt, strokið og notið þess að prófa ykkur áfram með ólík brögð.
Pakkinn hentar vel þegar þig langar að prófa ólíkar bragðtegundir án þess að kaupa stóra flösku af hverri. Litlu túpurnar taka lítið pláss í ferðatöskunni og auðvelt er að hafa eina við höndina í handtösku eða vasa þegar löngunin gerir vart við sig. Allar þrjár tegundirnar eru sykurlausar og vegan og má nota með latexsmokkum.

