Shared Touch
Shared Touch
Shared Touch
Shared Touch
Shared Touch
Shared Touch
Shared Touch
Shared Touch

Shared Touch

Shared Touch

Þegar bæði eiga að fá sitt halda mjúkir og riflaðir sílikonvængir utan um typpið á meðan sveigður snípörvari leggst að píkunni. Djúpur titringurinn fer um allt tækið þegar þið nuddið ykkur saman í uppáhaldsstellingunni og færir ykkur bæði nær fullnægingu. Með tíu stillingum og appstýringu ráðið þið hvort leikurinn verður langur og stríðinn eða fari beint í það sem ykkur langar í.

Venjulegt verð 19,990 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 19,990 kr
Magn:

Nánar um vöruna

Önnur hliðin er með mjúkum, rifluðum vængjum sem halda þægilega utan um typpið og auka örvunina um skaftið, en hin hliðin er með sveigðum snípörvara sem beinir titringnum að snípnum. Setjið tækið á milli ykkar í trúboðastellingunni, kúrekastellingunni eða annarri stöðu þar sem þið getið nuddað ykkur saman og fundið sama djúpa titringinn á sama tíma. Mótorinn situr í miðjunni og dreifir titringnum um allt tækið, svo bæði fá örvun við hverja hreyfingu. Í einleik má halda snípörvaranum að píkunni eða setja typpið á milli vængjanna og nota tækið við taktföst rúnk. Smá sleipiefni gerir hreyfingarnar mýkri og þægilegri.

Tíu titringsstillingar gefa ykkur val um allt frá rólegum forleik yfir í kraftmikinn titring þegar fullnægingin er farin að nálgast. Tækinu má stjórna með hnappinum eða We-Vibe appinu, þar sem hægt er að finna fleiri stillingar, búa til eigin mynstur og láta titringinn fylgja tónlist. Maki getur einnig tekið stjórnina í sama herbergi eða úr fjarlægð þegar þið viljið færa spennuna út fyrir svefnherbergið. Tækið er vatnshelt samkvæmt IPX7 og má nota í sturtu eða baði. Það er USB endurhlaðanlegt og með fulla hleðslu fæst allt að 60 mínútna leiktími.

Tæknilegar Upplýsingar

Stærð: 13,8 × 6,8 × 4 cm
Stillingar: 10 titringsstillingar
Stjórnun: Hnappur og We-Vibe appið
Efni: Húðvænt sílikon án þalata, BPA og latex
Vatnsheldni: IPX7
Hleðslutími: Allt að 120 mínútur
Notkunartími: Allt að 60 mínútur
Fylgir: USB hleðslusnúra, bómullarpoki og leiðbeiningar