Nánar um vöruna
Sogið eykur blóðflæðið til píkunnar svo skapabarmarnir verða fyllri, glansandi og næmari fyrir snertingu. Mjúka tungan inni í skálinni leikur beint við snípinn og býður upp á sjö mismunandi örvunarstillingar. Tvær skálar fylgja, 6 og 8 cm í þvermál, svo þú getur valið þá sem leggst best að líkamanum. Örlítið vatnsleysanlegt sleipiefni á húðina hjálpar til við að mynda þéttara sog.
Á hinum endanum er rifflaður titrari sem rennur allt að 10 cm inn í píkuna og örvar G-blettinn með tíu titringsstillingum. Soginu, tungunni og G-blettstitraranum er stjórnað sitt í hvoru lagi svo þú ræður sjálf hvernig unaðurinn byggist upp. Leikfangið er endurhlaðanlegt með USB-snúrunni sem fylgir. Hreinsaðu það eftir notkun með volgu vatni og hreinsi fyrir kynlífsleikföng. Það er skvettuvarið en má ekki fara á kaf í vatn.

