Nánar um vöruna
Settu vatnsleysanlegt sleipiefni á typpið og múffuna, leggðu hana utan um skaftið og láttu leikinn byrja. Bylgjulaga áferðin að innan strýkur húðina á meðan titringurinn örvar kónginn og allt typpið. Veldu úr tíu stillingum, stjórnaðu hreyfingunum sjálfur eða láttu makann sjá um handavinnuna.
Opin og teygjanleg hönnunin lagar sig að mismunandi stærðum og má einnig nota án fullrar stinningar. Múffan er hlaðin með USB snúru og endist í allt að 45 mínútur eftir fulla hleðslu. Hún er slettuvarin og skal þrífa eftir notkun með volgu vatni og leikfangahreinsi eða mildri bakteríudrepandi sápu.

