Hvað gerir Fleshlight sérstakt?
Fleshlight múffan er falin inni í sterku hylki sem minnir á vasaljós. Hylkið gefur gott grip þegar þú hreyfir múffuna upp og niður eftir typpinu og lokið aftan á gerir þér kleift að breyta soginu. Inni er mjúkt og teygjanlegt SuperSkin efni sem tekur fljótt á sig líkamshita og gerir hverja hreyfingu mýkri og unaðslegri.
Veldu fantasíuna og tilfinninguna
Sumar Fleshlight gerðir sækja fyrirmynd sína til þekktra klámstjarna og geta líkt eftir píku, munni eða rassi. Opið kveikir fantasíuna en það er mynstrið inni í múffunni sem ræður mestu um tilfinninguna. Rifflur, þrengingar og upphækkanir örva typpið á mismunandi hátt, svo skoðaðu innra mynstrið í vörulýsingunni og veldu það sem kveikir mest í þér.
Notkun og umhirða
Settu vatnsleysanlegt sleipiefni á typpið og inn í opið áður en þú byrjar. Ekki nota sílikonsleipiefni eða olíu þar sem það getur skemmt SuperSkin efnið. Eftir notkun skaltu taka múffuna úr hylkinu, skola hana vandlega með volgu vatni og láta hana þorna alveg áður en hún fer aftur í hylkið. Þannig helst hún mjúk, hrein og tilbúin næst þegar löngunin vaknar.