Nánar um vöruna
Berðu vel af vatnsleysanlegu sleipiefni á kónginn og inn í múffuna áður en þú rennir typpinu inn. Mjúka píkan tekur þétt á móti kónginum og göngin að innan örva skaftið með rákum og mjúkum púðum við hverja hreyfingu. Haltu um gyllta hulstrið og finndu taktinn sem kveikir mest í þér. Lokið á aftari endanum stjórnar soginu svo þú getur haft tilfinninguna mýkri og frjálsari eða lokað meira fyrir þéttara grip og ákafari örvun.
STU múffan er hönnuð fyrir edging og æfingar í fullnægingarstjórnun. Rúnkaðu þar til þú finnur að fullnægingin er alveg að taka yfir, hægðu þá á eða stöðvaðu og byrjaðu aftur þegar mesta spennan hefur minnkað. Með tímanum lærir þú betur inn á líkamann, finnur meiri stjórn og getur dregið unaðinn lengur á langinn áður en þú leyfir þér loksins að koma. Hitaðu múffuna í volgu vatni fyrir enn meira lifandi tilfinningu og láttu hana þorna alveg eftir þrif.

